13desember

Wii will rock you

Hér sit ég fyrir framan tölvuna og reyni að læra fyrir síðasta jólaprófið sem er Stjórnun fyrirtækja I. En guess what. Ég nenni því ekki. Og fyrst það er næstum því mánuður síðan ég bloggaði síðast er tilvalið að blogga núna.

Kannski helst í fréttum að ég verð bráðum fluttur í kjallarann og pabbi ætlar að breyta gamla herberginu mínu í bíósal. Ætlar að fá eitthvað high definition sjónvarp og það besta við þetta (fyrir utan að ég fæ kjallarann) er að hann ætlar að segja upp áskriftinni á Stöð 2, sem er ekkert nema sniðugt því Stöð 2 er búið að skíta hryllilega uppá bak núna uppá síðkastið hvað varðar dagskrá, og segir líka upp Sýn en í staðinn að fá Sky Sports pakkann svo við munum ekki missa af neinu.

Núna er ég annars helvíti spenntur að eignast Wii eitthvern tímann á næstunni. Fá bara jólagjafirnar snemma í ár eða eitthvað. Reyndar helvíti fyndin síða sem ég sá á Hugi.is þar sem er sagt frá og sýndar myndir af Wii-tengdum slysum. Þar sem maður hreyfir hendurnar en ýtir ekki bara á eitthverja takka þá kemur fyrir að maður lemur í ljós eða fjarstýringin þeytist úr höndunum á manni og brýtur sjónvarpið. Kannski læt fylgja eina skemmtilegustu myndina.


hversu fast kastaði þessi?

þessi hlýtur að hafa óvart haldið að hann hafi alvöru keilukúlu og reynt að fá fellu. Síðan er http://wiihaveaproblem.com./. Gaman að skoða hvað fólk lifir sig inní leikina.

En annars bara komið gott og bara gleðilegt jólafrí.

13. desember 2006 klukkan 00:57
Pétur Sćmundsen
7 athugasemdir
17nóvember

Mikið langt síðan ég bloggaði. Og svo einmitt þegar ég ætlaði að blogga þá lá síðan niðri og vesen. En nú er ég bara í rekstartíma í skólanum og mér leiðist svo það er bara tilvalið að blogga eitthvað.

Fór á sveitaball eitthvern tímann. Mætti með klút, fann hatt heima hjá Lofti og tók aviator-sólgleraugu hans Magga. Fórum í eitthverja lengstu rútuferð ever í Hvalfjörðinn og þar var húllumhæ. Nokkir að skora og þá allsérstaklega Sigurbergur Sveinsson a.k.a. Sberg sem gjörsamlega át upp einn busann.

Fór til Kára daginn eftir í smá drykkju og uppgötvaði hvað það var langt síðan ég sá þá drengi. Sá þá reyndar aftur á laugardeginum þegar ég skutlaði þeim nokkrum niðrí bæ.

En ég var svo sannarlega á Verzló-Vælinu í gær og var það hin mesta skemmtun. Mörg dúndurgóð atriði og þá sérstaklega Gulldrengirnir með lagið Gullvagninn en það atriði skilaði þeim einmitt 3. sætinu og vil ég óska Tedda, Gesti, Sigurbergi, D. Hjaltalín, Pétri Viðars, Óla rauða, Bjössa, Mána og Guðna til hamingju með það. Svo var eitthver vælstelpa, ein á píanóinu sem hirti 2. sætið en Anna María og Þóra Sif tóku réttilega 1. sætið með ótrúlega flotta útgáfu af Learn to fly með Foo Fighters og fengu þau eitthver brjáluð verðlaun. Friðrik og Grímur voru líka vel heppnaðir sem kynnar.

Og í endann segi ég bara: taktu nú gullvagninn til að sækja mig!!

17. nóvember 2006 klukkan 17:16
Pétur Sćmundsen
Engin athugasemd
25október

Berlín baby!

Það sem allir hafa beðið eftir: Berlínarfærslan (aaaaaaaaahh)

Bjöggi sótti mig um 12 leytið á föstudeginum og snigluðumst á Leifsstöðina. Nokkrir byrjuðu strax að drekka þar en ég tók því rólega. Tíminn var ekki lengi að líða og fórum við uppí litlu Iceland Express vélina okkar. Og það besta við það flug var án efa sætið mitt sem leit svona út:

besta sætið

og ekki bara það heldur hafði ég röðina útaf fyrir sjálfan mig. Ég hafði semsagt mesta pláss af öllum í vélinni sem er mjög þægilegt fyrir svo stóran gaur eins og mig.

Lentum í Berlín um 21 leytið. Tókum rútu uppá hótel. Hótelherbergin voru algjört grín. 8 rúm, ein sturta, engin sápa. Var nú ekkert alltof sáttur með það fyrirkomulag. En maður skellti sér í sturtu og svo fórum við drengirnir á röltið. Fundum notalegan pizzastað rétt hjá hótelinu sem hét Primavera. Fengum alveg ágæta pítsu þar. Svo tók við eitthvað megarölt í leit að eitthverjum skemmtistað. Þá gerðist eitt það fyndasta sem ég hef orðið vitni af en Maggi labbaði á svona stáltyppi (eins og Jón Gnarr kallar það) og "typpið" var einmitt í þeirri hæð að Maggi fór beint á "typpið" með typpið. Endaði með því að nokkrir tóku taxa niðrá Alexanderplatz en þar áttu allir skemmtistaðirnir að vera. Fundum eitthvern lame-ass stað sem hét Radio eitthvað. Þá voru flestir búnir að fá nóg og fóru heim eða eitthvert annað þar á meðal ég. En það var svo dæmigert að rétt eftir að flestir fóru fundu Maggi, Sölvi og Stymmi eitthvern stað sem hét H2O og var víst geggjaður staður. Svo vaknaði ég um 4 leytið við það að Haukur, Grímur, Maggi og Sölvi komu inní herbergi og ekki tómhentir. Þeir höfðu tekið dagblöð sem átti að dreifa í nálæg hús og komið með uppí herbergi. Og þar hófst algjört blóðbað þar sem þeir rifu og tóku í sundur öll blöðin og hentu útum allt herbergi í takt við tónlist sem Maggi spilaði úr myndavélagræjunni sinni. Svo fóru þeir út aftur en eftir stuttan tíma komu Haukur og Grímur aftur, aðeins skýrari í hausnum svo þeir hjálpuðu okkur að troða öllum blöðunum í töskuna hans Magga og töskuna hans Sölva og koddann hans Magga (nú fattiði hvað þetta var mikið af blöðum). Svo var Grímur orðinn nokkuð strangur og skipaði okkur að fara að sofa svo við sváfum í nokkra tíma...

Vaknað á laugardagsmorgunn klukkan 8 til að ná dagskránni alveg örugglega. Fengum morgunmat sem var hræðilegur og fórum svo í kósí rútu þar sem margir sváfu á leiðinni til Sachsenhausen. Komið að Sachsenhausen og þar tók á móti okkur gamall maður sem átti föður sem var í þessum fangabúðum. En grey maðurinn gat ekki ákveðið að tala eitt tungumál svo hann talaði þýsku, ensku og jafnvel smá íslensku. Ég fékk hausverk á að hlusta á hann svo ég tók bara myndir í staðinn fyrir að hlusta á hann. Eftir Sachsenhausen áttum við að fara í eitthverja gönguferð um Berlín en hætt var við hana þar sem það tók alveg ofsalegan tíma að komast heim á hótel aftur. Svo um kvöldið fórum við á mjög góðan stað sem hét því skemmtilega nafni Bergmann 103. Mjög góður matur. Drukkum mikið þar, fórum svo aftur uppá hótelherbergi þar sem Pétur Örn kom með eitthvern umtalaðasta drykkjuleik fyrr og síðar. Þeir sem föttuðu ekki dæmið hans þurftu að drekka en ekki þeir sem föttuðu það. Ég var ofsa stoltur þegar ég fattaði það. Svo fórum við útá lífið. Fórum aftur á Alexanderplatz og fórum á H20. Stóð þó í smástund með Óla rauða til að hjálpa honum að klára drykkinn sinn sem var... eitthvað sull blandað saman í Red Bull dós. Fórum inn og keyptum meira áfengi og dönsuðum eins og brjálæðingar. Enginn var að þora útá dansgólfið í fyrstu svo ég, Stymmi og Sölvi byggðum upp stemninguna með því að taka af skarið og dönsuðum einir á dansgólfinu í smástund og ekki leið á löngu þangað til allir aðrir voru að dansa. Svo fórum við í eitthvað annað herbergi á staðnum og þar var eitthver geggjaðasti DJ sem ég hef heyrt í. Tók þessa góðu mynd af honum með Dicka.

góður DJ

Svo þurftum við að klára kvöldið almennilega svo við fórum á stippstað sem hét Tutti Frutti. Ég ætla ekki að skrifa neitt meira um það :-þ

Fórum svo á Burger King, fékk mér þó ekki neitt. Svo bara í háttinn til að fá 2 klukkutíma svefn.

Vöknuðum aftur eldhressir á sunnudagsmorgunn. Fórum í sögusafnið og gyðingasafnið. Um kvöldið fórum við útá röltið að leita að pub sem sýndi Real Madrid - Barcelona. Fundum engan svo við fórum á restaurant sem leit vel út. Hann hét Angus og munið þetta nafn því þið skuluð aldrei stíga fæti þangað inn. Þarna fékk ég eitthverja verstu pítsu sem gerð hefur verið og allur tíminn sem við eyddum þarna fór bara í eitthvað rugl. Fórum svo útá eitthvað bar-rölt en ég var alveg að drepast úr þreytu svo ég fór bara að sofa. Vaknaði þó þegar Haukur og Grímur komu inn. Og svo aftur þegar Maggi kom inn. Magga datt það snjallræði í hug að skilja lykilinn eftir í skránni fyrir Davíð Gill svo hann kæmist inn án þess að vekja okkur. Svo um hálf 7 um morguninn vaknaði ég við það að eitthver hamraði af öllum lífs og sálarkröftum á hurðina. Ég opnaði og þar stóð Davíð Gill með rúnstykki. Ég benti honum á lykilinn og hann skammaðist sín og bað mig fyrirgefningar. Hann var svo einlægur að ég gat ekki annað en hleypt honum inn.

Vaknaði svo á mánudagsmorgunn tilbúinn að fara í Wansee-húsið. Svo kom í ljós að það var eitthvað frjálst svo við gaurarnir fórum bara að versla og tókum allan daginn í það. Mættum uppá hótel um 6 leytið og gerðum okkur tilbúna til brottfarar. Þurftum ekki að bíða það lengi eftir fluginu okkar og flugum beinustu leið heim. Ég fékk ekki sama sæti og ég fékk á leiðinni út en það breytti litlu. Eftir lendingu verslaði maður smá í Fríhöfninni og svo brunaði Bjöggi með mig heim.

Djöfull var gott að komast í rúmið mitt.

Þakka öllum fyrir crazy-ass-bitch-fokking-motherfokk ferð þá sérstaklega herbergisfélögum mínum:

Bjöggi a.k.a. "Never-got-any-sleep"
Maggi a.k.a. "The Paper Shredder"
Sölvi a.k.a. "The Party Animal"
Haukur a.k.a. "The Wobbler"
Grímur a.k.a. "The Boss"
Davíð Gill a.k.a. "The Doorbreaker"
svo einnig hinum
Dicki a.k.a. "The Interpreter"
Þráinn a.k.a. "The Basshunter"
Hrannar a.k.a. "The Pimp"
Stymmi a.k.a "Mr. Furious"

25. október 2006 klukkan 23:17
Pétur Sćmundsen
7 athugasemdir
19október

Berlín og bumbumenn

Á föstudaginn var haldið svo sannarlega veglegt partí. Það var haldið uppá einn herlegasta 12:00 þátt sem hefur nokkurn tíma verið sýndur. Endilega tékkið á 12:00 heimasíðunni og skoðið. Fyrst að þetta var "áfengislaust partí" þurftum við að drekka snemma og hratt. Bjöggi pikkaði mig upp og í bílinn voru komnir Þráinn og Dicki. Bjöggi rúntaði okkur um allt og á meðan sturtuðum við í okkur bjórinn en Dicki tók þessu víst aðeins of bókstaflega og stútaði þeim ófáum á stuttum tíma. Á endanum komum við í Dugguvoginn þar sem partíið var haldið. Þar voru Ívarsmenn að halda uppi stuðinu svo maður vissi að þetta myndi verða dúndurkvöld. Enda var þetta kvöld dúndur, og þá sérstaklega dúndur að fylgjast með Dicka enda reyndi hann við allt sem hreyfðist (og uppskar eitthvað að lokum). Ég ætla bara að láta myndirnar tala en myndir eru komnar á maggi.is og eiga Maggi og Jói Stef heiðurinn af þeim mögnuðu myndum sem náðust. Ég nagaði af mér hendurnar að hafa ekki munað eftir minni myndavél... oh well.

Djöfulsins vika annars. 2 próf og biðin eftir Berlínarferðinni létu þetta líða aðeins lengur en venjulega en á morgun kl. 15:20 að staðartíma leggjum við af stað til Berlín með djammið í farteskinu. Við munum gera allt annað en að slaka á í þessari ferð, við erum að tala um áfengisdauða, konukaup, fjárhættuspil og síðast en ekki síst klámstjörnur. Þetta verður OFSI!

19. október 2006 klukkan 19:46
Pétur Sćmundsen
3 athugasemdir
09október

Vrím

VÍ-mr dagur var síðastliðinn föstudag. Eftir bókfærslupróf (sem ég fékk 10 í by the way :P) þá fór maður niðrí hljómskálagarð til að fylgjast með alls konar rugli. Bílaítroðslu, öskurkeppni og róðrarkeppni og margt fleira. En skrautllegasta keppnin er án efa mexíkanahlaupið. Þá er drukkinn einn bjór, svo eitt skot, skokkað á næstu stöð, annar bjór, skokkað á næstu stöð, tvö skot, synda (meira hlaupa) yfir litlu tjörnina sem er hliðina á stóru tjörninni og svo einn bjór í lokin. Keppandi Verzló þetta árið var Jói Ívarsmaður. Hann gerði sitt besta en ekki var það nóg og mr tók þá keppni. En ræðukeppnin er eins og ávallt úrslit dagsins. Missti reyndar af "fyrri hálfleik" því ég fór á Daft Punk myndina, Electroma, klukkan 8. Mjög listræn mynd hér á ferð og ég var reyndar næstum sofnaður á tímabili. Leið eins og hálfvita þangað til ég fattaði að Dicki var alveg að sofna líka. Þá leið mér aðeins betur. Thomas Bangalter og hinn (kann ekki að skrifa nafnið hans, er með eitthvað uber franskt nafn) voru á staðnum og svöruðu spurningum eftir myndina. Kom held ég bara ein góð spurning, allar hinar algjört kjaftæði. Fór svo eftir myndina til að horfa á endann á ræðukeppninni. Ég sá að meðmælandinn okkar var nú ekki upp á marga fiska en stuðningsmaðurinn bætti það svo sannarlega upp enda valinn ræðumaður kvöldsins. En mr vann ræðukeppnina sjálfa svo það var svoldið svekk. Við drengirnir ætluðum svo að kíkja í eitthvað málfó partí eftir keppnina en við föttuðum svo allir að við vorum að drepast úr þreytu svo við rúntuðum bara eitthvað.

Skondið hvað Dicki, Maggi og Sölvi gerðu í langa hléinu í dag en þeir fóru allir saman í klippingu. Sérstaklega skemmtilegt að sjá Magga en hann yngdist um 6 ár við þessa klippingu. Heyrði reyndar að Sölvi hafi verið að höstla eitthvað hárgreiðslukonuna, í alvöru talað getur þessi gaur ekki farið neitt án þess að höstla?

En nú eru aðeins 11 dagar í Berlínarferðina alræmdu en sú ferð mun vera ofsaleg. Get ekki beðið. En þú?

09. október 2006 klukkan 21:40
Pétur Sćmundsen
3 athugasemdir
02október

myndir

Tróð inn fullt af myndaalbúmatenglum hér til hliðar. Nokkur orðin svoldið gömul en alltaf gaman að skoða. Svo skoðiði þarna!
02. október 2006 klukkan 00:01
Pétur Sćmundsen
Engin athugasemd
29september

ţú hefur veriđ litaboltađur

Mjeeeeaaaaáááááá. Flott er. Djöfull er flippað að skrifa hérna. Ég finn það bara. ÉG FINN FLIPPIÐ!!!!Er bara að láta mér leiðast þangað til slökkt verður á borginni og eitthver mynd verður sýnd á himninum og eitthvað. Allavega, íþróttavika Verzló er nú að ljúka og heppnaðist hún mjög vel bara. Horfðum á Verzlinga taka mr-inga í nefið í handbolta í dag. Teddi Ponza skoraði grimmt og Særúnarkroppurinn hann Máni gerði það einnig. Teddi Ponza reyndar búinn að vera dúnduröflugur í íþróttavikunni, held að hann hafi tekið þátt í öllu nema Paint-ball sem ég einmitt tók þátt í. Ég, Gestur, Pétur "topp tíu" Viðars og fleiri mynduðum myndarlegt Paint-ball lið og tókum þátt í Verzlómóti í, jú þið giskuðuð á rétt, apakasti...... hah þarna voruði geðveikt tilbúin að lesa "Paint-ball" en þarna kom ég ykkur í opna skjöldu...... allavega við stóðum okkur hreint frábærlega, unnum 4 leiki og töpuðum aðeins einum. Keppt var með Capture the Flag fyrirkomulagi og náði ég jafnvel að flagga tvisvar. Þótt við unnum ekki skemmtum við okkur ofurvel. Mæli með þessu fyrir alla, ekkert skemmtilegra en að plaffa niður eitthverja gaura.

Vil svo koma á framfæri skoðunum mínum á sjónvarpsþættinum Búbbarnir. Mér fannst þeir alltí lagi í fyrstu en svo sá ég nokkra þætti í viðbót og þeir nota alltaf sömu brandarana! Sérstaklega þennan þegar gaur er að tala í skóinn sinn og segir "Nei það er enginn Pálli í þessu númeri. Reyndar er ómögulegt að hringja í þetta númer. Já þetta er nefnilega ekki sími, þetta er skór". Hohoho..... ég er búinn að sjá þenna djók í hverjum þætti. Talandi um skitu.

Glænýr header bara. Tók þessa mynd af Hermigervli á Busaballinu. Hann er svo mikill stuðbolti að maður verður bara að taka mynd af honum. Reyndar á ég svona 14 myndir af Valda og crewinu hans en hvað með það.

Skemmtilegar helgar annars fram undan. DJ Thomas Bangalter, betur þekktur sem annar flipparinn úr dúettinum Daft Punk, verður á NASA 7. okt. Og auðvitað ætla ég að mæta. Allt að gerast.

Flott flipp í bili, bæbæ

 gott að hafa svona edit dæmi því Maggi.is er búinn að redda myndunum mínum á netið, enjoy! ýta hér
29. september 2006 klukkan 02:36
Pétur Sćmundsen
Engin athugasemd
20september

bledzig

Busaball síðasta fimmtudag. Stuuuuð. Mættum til Gessa um kvöldið og drukkum og chilluðum. Drifum okkur svo á ballið þar sem Valdi fór gjörsamlega á kostum eins og við mátti búast. Mesta stuðið hjá honum og tók ég skrilljón myndir í þeim sal. Allir helsveittir og sóðalegir enda saaaajúúúúklega heitt þarna inni. Tók líka eitt skemmtilegt vídjó en ónefndur aðili bað mig um að eyða því :P. En já þessar myndir koma kannski inná ofurvef nemendafélags Verzló sem heitasti vefumsjónamaður landsins sér um. Ég er náttúrulega að tala um nfvi.is með Dicka fremstan í flokki. Hef annars mjög lítið til að blogga um enda var þetta sorgleg lýsing á busaballinu en ég vil frekar láta myndirnar tala svo ef þær koma á nfvi.is þá bara fariði þangað. kjánar

talandi um myndir.... VALGERÐUUUUUUUUUR

20. september 2006 klukkan 23:17
Pétur Sćmundsen
1 athugasemd
15september

Looking for Paris in the Tsotsi World with The Libertine on the Renaissance in Enron

Tími til kominn á færslu held ég bara.

Fyrst og fremst var "snobb"partí föstudaginn 1. sept. Var það haldið niðrí Nauthólsvík og var partítjald á staðnum og inní því var.... jah án efa besta músik sem ég hef heyrt. Ívarsmenn voru mættir og djöfull voru þeir geðveikir. Gjörsamlega rústuðu þessu partíi. Sérstakt hrós til þeirra. Ég, Dicki, Þráinn, Maggi og Sölvi og fleira gott fólk mætti þangað til að byrja skólann með smá wake-up call. Ívarsmenn voru svo magnaði að við vorum komnir í eitthvern rave fíling svo nokkrir drengir fóru úr að ofan. Leitt að hafa ekki cameruna á staðnum, viss um að ég hefði getað náð nokkrum ómetanlegum myndum þarna. En það var svolítið leitt að gleraugun mín brotnuðu í öllum látunum. Ég setti þau einfaldlega í jakkavasann og lét jakkann frá mér á fátroðnum stað og þegar ég sótti hann aftur og ætlaði að láta gleraugun á mig þá hafði önnur linsan poppað útúr og var hvergi að finna. Svo ég var gleraugnalaus í 10 daga (fékk gleraugun í gær). Húllumhæ í lagi.

Svo hafa ég og Pálmi náð að nauðga IFF núna síðustu daga og höfum við séð 5 myndir (hæst 5 stjörnur):
Paris, Je Taime *****
Renaissance ****
Tsotsi ***+
The Libertine ***
Enron, the Smartest Guys in the Room ****

Tíu mynda passi kemur mjög sterkur inn.

Busaball í kvöld. Drekka og tékka á þessu busafólki. Það verður stuuuð.

15. september 2006 klukkan 00:03
Pétur Sćmundsen
Engin athugasemd
30ágúst

Who's that?

Hi, I'm Troy Maclure. You may know me from films such as "So, I have cancer" and "Where did my face go?". I'm now at the Pez-dispenser home page which has been deserted for quite some time. Here I.... wait a minute... what is this? Something is MATERIALIZING from the mist. Is it Michael Jackson? ... No, just a bad impersination... it's coming closer. Seems like a GOLDEN Volkswagen... someone's stepping out. Oh, I cannot believe it! It's the Pez-dispenser!! He's finally here! I'm gonna ask him where he has been.

Já Troy, það er satt að það er langt síðan ég hef verið hér. Ég ætlaði alltaf að bíða með þessa færslu þangað til ég fengi myndir frá starfsmannadjamminu en einhvern veginn varð aldrei að því (skamm Valgerður!). En jæja, fyrst ég er hérna gæti ég alveg eins gert það.

Starfsmannalokaflippið hófst í Þróunarsetri Bláa Lónsins þar sem skipt var í lið fyrir "The Amazing Race" hlutann. Ég, Ásgerður og Firbies (þetta er kvenkynsnafn sem ég gef þegar ég man ekki hvað sú kona heitir) enduðum saman í liði. Við byrjuðum hlaupið og tókum strax stefnuna á Northern Light Inn. Firbies þekkti konuna í móttökunni og hún var svo yndisleg að keyra okkur í Grindavík en við þurftum að komast í Grindavíkurlaug. Þar var ég fenginn til þess að kafa eftir hring sem myndi gefa okkur næstu vísbendingu. Ferðinni var svo heitið niðrá höfn þar sem maður átti annað hvort að veiða fisk eða fylla 2 lítra flösku með teskeiðum. Við fylltum flöskuna og fórum svo á Lukku Láka. Þar átti að annað hvort þamba 4 bjóra eða hitta þrisvar í miðjuna á píluspjaldinu. Við drukkum bjórinn (að sjálfsögðu) en þar við vorum 3 þurfti einn að drekka meira. Það var náttúrulega karlmaðurinn í liðinu sem gerði það (drakk alla vega mest allt, fékk kannski smá hjálp frá Ásgerði) og fengum okkar næstu vísbendingu. Við húkkuðum far niðrá golfvöll og
þar áttum við að tína blóm og eitthvað vesen og svo átti einn úr liðinu að taka tvo hringi á púttvellinum. Þar kom 5 daga golfreynsla mín sér vel og við enduðum í 3 sæti sem er mjög gott miðað við að við þekktum engann úr Grindavík en fólk fékk vini sína og vandamenn til að skutla sér á milli staða. Skammisti ykkar þarna! Síðan fékk ég að fara í sturtu í Grindavíkurlaug til að skola af mér svitann og gera mig fínann. Svo rölti ég bara niðrí Lukku Láka og þá hófst drykkjan að alvöru (um 6-leytið). Þar fengum við dýrindis kjöt að snæða og voru veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í Kapphlaupinu Litla. Eftir það var sungið... ójá.. það var sungið. Karíókíið var sett í gang og fólk sagði mér frá seinna að ég hafi tekið eitthvað um 10 lög (man nú bara eftir svona fjórum...) svo karíókíið fór svo sannarlega ekki forgörðum. Tók þarna Twist and Shout með Bítlunum og Highway to Hell svo eitthvað sé nefnt. Valgerður á víst vídjó af Twist and Shout... væri gaman að sjá það ;D. Svo reyndi ég smá Michael Jackson eftirhermu en þar sem ég var orðinn helvíti hellaður tókst það ekki sem skyldi. Gólfið var ekki nógu sleipt svo ég tók bara moonwalkið í slow-motion (byggt á vitnisburði þeirra sem muna þetta betur :-þ). Fór síðan út og tyllti mér á pallinn úti til að taka því svoldið rólega. Svo þegar stelpurnar ætluðu að hjálpa mér á fætur grátbað ég þær að draga mig ekki eftir gólfinu. Nú var heilinn alveg hættu að starfa svo ég labbaði inn á Lukku Láka með minn eigin bjór sem Stephanie gaf mér í afmælisgjöf (takk fyrir það Steffí) og eigandinn var skiljanlega ósáttur og tók hann af
mér. Svo reddaðist heimferðin svo vel þar sem Illugi var edrú svo hann skutlaði mér og Ásgerði aftur í bæinn. Dó um leið og ég settist í bílinn. Ég vaknaði þó einu sinni á leiðinni. Við vorum stopp hjá KFC við Smáralindina en þá hafði löggan stoppað okkur. Eitthvað routine stopp, Illugi látinn blása og eitthvað. En þetta stopp kom á mjög heppilegum tíma því ég vaknaði, steig útúr bílnum og ældi. Illugi keyrði mig alla leið og ég drattaðist í bólið.
Vil þakka öllum, ekki bara þeim sem voru þarna þetta kvöld, heldur öllum sem ég vann með fyrir æðislegt sumar og við MUNUM sjást aftur :)

But back to the present en ég fór á smá shopping spree um dagana. Ég, Sölvi, Maggi, Bjöggi og Dicki vorum í löngu gati einn daginn svo við skruppum í Kringluna. En þá tók á móti okkur ófögur sjón. Þar höfðu Amnesty International meðlimir tekið undir sig Kringluna og neyddu alla til að hlusta á rausið í þeim og verða meðlimir. Við reyndum að brjóta okkur leið í gegn en sókn Amnesty-liða var sterk. Ég náði að skvetta kísil í augun á nokkrum, Maggi krullaði nokkra í steik, Sölvi tók upp borðtennisspaðann og negldi nokkra niður, Dicki þýskaði að minnsta kosti 4 í klessu og Bjöggi kom sterkur inn með roundhouse kickið sem hann lærði frá Chuck Norris. Svona náðum við að brjóta okkur leið í gegnum varnarmúr þeirra svo við sluppum... og já ég keypti nýjann gemsa.

Svo tveimur dögum seinna var hringt í glænýja símann minn frá EJS en þeir voru að láta mig vita að tölvan sem ég pantaði í lok júlí væri loksins komin í hús. Svo ég fór þangað og sótti þessa dýrindis XPS 600 Dell borðtölvu (og nei ekki þessi með eldinum... would have been wicked though...) og er að skrifa þessi orð á þá tölvu núna.

Ok þetta er svona helsta sem er búið að gerast hjá mér so back to you Troy

Thank you, Pez-dispenser. Yep, you heard it folks. The one and only Pez-dispenser is still alive and kicking and let's hope he will honor us with his presence again soon.... I know I will.

Maclure out!
30. ágúst 2006 klukkan 04:59
Pétur Sćmundsen
6 athugasemdir

Ađalvalmynd

Niđurtalning

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ég er....

Pétur Sćm

My name is mr. Sćmundsen and don't you forget that.

Viva Verzló
Glory Man United
Valsmenn léttir í lund
Bláa Lóniđ rokkar
Rokk og Daft Punk no.1
Ísland já takk

and you add some potatoes and some bacon and baby.... you got a stew going!

Listakrot Spíru

Leikur dagsins

Leit